Spark í pung rasista og bjána.

Þetta er alveg hægt. Það þarf ekki alltaf að hata alla sem eru aðeins öðruvísi en maður sjálfur. Það leiðir aðeins af sér meira hatur. 


mbl.is Múslimar með aðstöðu hjá Fríkirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðing

"Kristján Markús Braga­son, sér­fræðing­ur hjá Grein­ingu Íslands­banka, seg­ir að síðustu upp­gjör hafi ekki lagt grunn að svona mik­illi lækk­un."

Þýðing: "Við höfum ekki hugmynd um af hverju þetta lækkaði."


mbl.is Hröð hækkun skilar hraðri lækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef allar laxveiðiár væru þjóðareign...

Myndum við sætta okkur við að fá ekkert nema launaskatta af þeim sem ættu veiðikvóta í þeim? Á meðan gætu þeir sömu leig kvótann til allra þeirra sem vildu. Væri ekki nær að bjóða út afnotaréttinn í ánum fyrir hvert sumar? Viðkomandi gæti þá veitt laxinn sjálfur, eða leigt hann áfram til annara. 


mbl.is Veiðigjöld ekki sanngjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hver skyldi fá þessar 1-2 milljónir á endanum?

Verktakinn auðvitað. Af hverju ætti hann að skila lækkuninni áfram til kaupenda?


mbl.is Lækkar kostnað um 1-2 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsærið gegn Framsóknarflokknum heldur áfram

Þetta ætlar engann endi að taka. 


mbl.is Tími leyndarinnar liðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáandinn Már sér inn í framtíðina.

Mikið erum við heppin að hafa Seðlabankastjóra sem sér inn í framtíðina. Ég get bara ekki séð að það liggji nokkuð á að losa um gjaldeyrishöftin. Þetta er eitthvað sem skiptir almenning ekki nokkru einasta máli. 

Getur verið að Már sé að draga taum ræningja úr hruninu sem vilja losa um eignir áður en núverandi stjórn fer frá völdum?

 


mbl.is Fáum aldrei betri aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leynt og ljóst skal þaggað niður í RÚV

Ríkisútvarpið er búið að vera þyrnir í augum ríkisstjórnarinnar, því það hefur verið duglegt að flytja fréttir af því hvernig hún hefur mulið undir efnafólk á kostnað allra annara. Því skal unnið að því að með öllum ráðum að múlbinda fréttamenn þar. 

Fyrir utan nokkra vefmiðla er RÚV eini fjömiðillinn sem ekki er í vasa peningaaflanna, og þetta þolir ekki ríkisstjórn sömu afla. 


mbl.is Siðareglur Rúv með aðstoð sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei takk, kæri Ólafur!

Við þurfum ekki fleiri gamla tækifærispólitíkusa. Tími Ólafs er liðinn. Mér sýnist að eina mál næsta þings verði ný stjórnarskrá. Það hefur sýnt sig undanfarið að sú gamla er ónothæf. 

Þjóðin þarf meira vald til að geta skipt út spilltum stjórnmálamönnum, flokkarnir eru greinilega ófærir um það sjálfir. 


mbl.is Ólafur aftur í forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsærið gegn Sigmundi Davíð er stærra en ég hélt!

...


mbl.is Smalaði 376 blaðamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbjóðslegt skítapakk sem á skilið að vera rekið úr landi

Ég er að tala um ráðherra og starfsmenn Útlendingastofnunar sem tóku þessa ákvörðun.

Einhver sagði að myndband af "flutningum" minnti sig óþægilega á flutninga nasista á gyðingum í Þýskalandi, þar sem fjölskyldum var safnað saman í skjóli nætur undir lögreglu/her. 

Hvað er eiginlega í gangi hjá þessari stofnun og ráðherra hennar? Þarna er fjölskylda sem er svo sannarlega ekki að "lifa á kerfinu". Fjölskyldufaðirinn kominn í fulla vinnu, börnin kominn í skóla og una hag sínum vel, og þá sendir Útlendingastofnun 20 lögreglumenn um miðja nótt og hendir þeim úr landi. 

Er skilyrði að maður sé illmenskan uppmáluð og án nokkurar skynsemi eða náungakærleiks til að fá vinnu þarna? 

Og innanríkisráðherra hleypur í felur, hún veit upp á sig skömmina. Ég vona að henni svelgist ekki á jólasteikinni og njóti vel jólabónusins. 

 

Afsakið á meðan ég æli!


mbl.is Flutt úr landi í skjóli nætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband