29.10.2007 | 01:56
Tæknilegó nostalgíukast
Í andvöku var ég að ráfa um netið og datt inn á bricklink.com, þar sem fólk er að kaupa og selja Legókubba (hversu fáránlegt sem það hljómar). Þarna er allt, allt frá 2 tannhjólum í plastpoka, upp í sérsmíðað Liebherr kranalíkan á yfir $2000.
Þarna fann ég líka mitt fyrsta Tæknilegó, sett númer 854, Go-Kart. Með stýri og 1 sýlindra vél. Þetta fannst mér algjör snilld, og ég man að pabba gamla fannst það líka. (Líklega þess vegna sem hann keypti þetta ;))
Eftir það var ekki aftur snúið, ég safnaði mér fyrir beltaskóflu, keypti mótor og bjó til ótrúlegustu hluti. Ég safnði heilt sumar fyrir risastórum kassa sem sat marga mánuði niður í gamla kaupfélagi, held alveg örugglega að ég hafi skoðað þennan kassa í hvert sinn sem sveitadrengurinn fór í kaupstaðinn.
Hversu marga verkfræðinga ætli Legó hafi alið í gegn um árin? Ég fór reyndar ekki í verkfræði, en ég lærði um stimpla, mismunadrif, tannhjól, gírkassa, hjöruliði og burðarvirki.
27.10.2007 | 17:22
Tölvuleikur virðist eykur námsgetu
Þessi fyrirsögn er alveg 1.000.000!
Tölvuleikur eykur námsgetu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2007 | 13:50
STEF kemur næst...
Ætli STEF rukki ekki fyrir þessi tæki líka?
/úps, vonandi hef ég ekki gefið þeim hugmynd...
RÚV má innheimta afnotagjöld af útvörpum í atvinnubílum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.10.2007 | 18:11
Faldir vextir
Til hvers að setja þak á dráttarvexti, ef það er svo bara smurt með alls konar uppdiktuðum "gjöldum". Í staðin fyrir 23,5% þá eru þeir kannski 200%...
Uppskáldað dæmi: Ég borga 5000 krónu reikning 10 dögum of seint. Dráttarvextir eru kannski 250 krónur. "Vanskilagjald" er 400 krónur. Hverjir eru raunverulegir dráttarvextir? Fyrir hvað er vanskilagjaldið? Bankinn þurfti ekki að senda út nýja rukkun, þannig að ekki er það í því...
(NB. Ég borga alltaf á réttum tíma)
Björgvin berst gegn sjálftöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2007 | 15:39
Frekar Gunna en Egil!!!
Dr. Gunni fékk ekki boðskort | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2007 | 14:43
I CAN HAS CATFITE?
Lögreglan stöðvar kattaslag um miðja nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2007 | 10:25
Pákur og lúðrablástur?
Ég mæli með að löggan auki dramað með því að spila Also Sprach Zarathustra undir, helst með live pákum.
Lögreglan sýnir fíkniefnin sem fundust í gær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2007 | 16:00
Ekki frétt...
Fjölmenn óvissuferð til Spánar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.1.2007 | 11:50